Það var lengi verið viðtekin skoðun að það tæki áratugi að byggja upp stjórnmálafylgi fyrir nýja flokka, sem þar með geri ný framboð vonlaus. Þessi skoðun var byggð á langri reynslu. Ný framboð, sem flest voru byggð upp í kringum einstaka stjórnmálamenn, gátu komið mönnum inn á þing, en leystust upp innan tíðar. Það sem fleytti Besta Flokknum inn í borgarstjórn í fyrstu atrennu árið 2010 var ekki djúpstæð hugmyndafræði heldur frávik annarra eldri flokka frá sinni hugmyndafræði. Í hugum kjósenda stóðu gömlu flokkarnir því ekki fyrir neitt, en það sem skyggði á eiginlega framtíð Besta flokksins og síðar Bjartrar framtíðar var raunverulegur skortur á hugmyndafræði.
↧