Tinna Brá Baldvinsdóttir, eigandi Hríms, opnaði fyrstu búðina ásamt vinkonu sinni einungis 26 ára gömul árið 2010. Margir töldu þær brattar að opna hönnunarbúð í miðri kreppu, en allt hefur verið upp á við hjá Hrím síðan þá. Velgengni verslunarinnar hefur verið eftirtektarverð og hafa þrjár Hrím verslanir sprottið upp í Reykjavík á jafn mörgum árum. Tinna segir aðspurð engar áætlanir um að fjölga verslunum á Íslandi á næstunni. Það væri frekar að nýjar Hrím búðir myndu skjóta upp kollinum á erlendri grundu.
↧